Sagan mín

Hæ og velkomin á síðuna mína!

Ég heiti Berglind Lopez og er 27 ára mamma og eiginkona.

Mataræðið mitt hefur alltaf verið í tómu tjóni. Ég át aðallega brauð, morgunkorn og sykur og hafði ekki hugmynd um hvað telst hollt. Svo spriklaði ég stanslaust í ræktinni án árangurs…

Eftir að ég eignaðist strákinn minn tútnaði ég út en var alls ekki tilbúin til að sjá það. Ég áttaði mig á stöðunni þegar ég var að máta úlpu og móðir mín benti mér vinsamlega á að kannski væri sniðugt að máta númeri stærri flík. Ég var stórhneyksluð á henni og tróð mér í úlpuna og rétt náði að renna upp. Sigri hrósandi settist ég niður en þá spratt rennilásinn upp með tilheyrandi látum!

…ég þurfti greinilega að gera eitthvað í málinu.Fyrir herbalife

Ég var búin að reyna að æfa sjálf, borða hollt og alls kyns kúra. Ég náði alltaf af mér nokkrum kílóum en nokkrum vikum seinna var þetta allt komið á aftur og meira til.

Facebook var fullt af árangurssögum af fólki sem hafði notað Herbalife ásamt hollu mataræði og þá fylgdi leiðbeinandi með kaupunum!

…mér fannst þetta sniðugt og ákvað að prufa!

Ég ákvað að keyra á þetta og sjá hvað myndi gerast… eftir 8 vikur voru 7kg farin! Ég er búin að losa mig við 11kg í heildina, kom mér í kjörþyngd og hef haldið mér þar síðan! Auk þess hef ég hef lækkað fituprósentuna um 10 stig og misst tæpan meter í ummáli!

Í dag á ég lífsstíl sem ég myndi ALDREI skipta út! Ég er full af orku, meltingin er góð, húðin lítur betur út og ég er hreinlega bara vel nærð í fyrsta skiptið á ævinni. Herbalife hefur gjörbreytt mínum lífsstíl og fjölskyldunnar minnar.

Ég hef fengið ómetanlegar leiðbeiningar um mataræði, hreyfingu og starfssemi líkamans. Ég KANN á líkamann minn í dag, hvort sem ég vil grennast, styrkja mig eða byggja upp.

Ef ÞÚ vilt fá sömu fræðslu, eftirfylgni og aðstoð við Herbalife lífsstílinn og ég fékk þá er ég meira en til í að hjálpa þér. Ekki hika við að senda mér línu og við finnum tíma fyrir þig þar sem við komumst að því hverju þarf að breyta og setjum upp plan fyrir þig :)

Sendu mér skilaboð til að panta tíma í ókeypis líkamsgreiningu og lífsstílsmat þar sem þú færð m.a. að vita vöðvaþyngd, fituprósentu, vatnsmagn, ástandsaldur og þyngd.

Við setjum svo upp flott plan fyrir þig og komum þér af stað. :)

 

Viltu sjá fleiri myndir af árangri mínum? Smelltu þá á hér

Hafðu samband í dag ;)

Berglind Lopez

Sjálfstæður Herbalife Leiðbeinandi

GSM: 849-0999

berglind@fitzone.is

https://www.facebook.com/beggalopez